Thursday, February 16, 2012

Búin að vera að taka til í skápum og skúffum á vinnustofu og henda miklu af ónýtum myndum.Svo í dag er allt í röð og reglu allavega í einn dag.

Þegar allar skúffur eru teknar í gegn á maður heilan helling af myndum og dóti sem ég var búin að gleyma.
Gaman að sjá hvað mér hefur farið framm í listinni að eigin áliti -haha

Nú er bara að hefjast handa við 24 vatnslitamyndir fyrir Japan 2013.
Og til að eiga 24 góðar myndir þarf ég eflaust að mála 40 og velja svo úr.

Svo er að muna eftir að stundum heppnast bara myndir sí svona en aðrar þarf að
glíma við,svo  útkoman verði góð.

Wednesday, February 1, 2012

1.feb 2012. Að hefjast handa.

Var í listatíma í kvöld og gerði margar  prufur að litum og Norðuljósaæfingar.

Skemmtilegur tími sem líður fljótt með Litagleði hópnum.